|
|
04.08.2006 13:46:30 / margret06
Á föstudagseftirmiðdag pökkuðu Sigrún og
Palli sínu dóti niður og héldu til Nice því þau áttu flug kl 10
næsta morgun og við kvöddumst og þökkuðum góða samveru.Við Guðjón
gistum einni nótt lengur og kvöddum staðinn og erum staðráðin í að
fara aftur til Toskana.
Nú hófst norður ferð okkar Guðjóns og
fyrsti vikomustaður okkar Padova þar sem við skoðuðum enn eina
kirkjuna með freskum já mjög gömlum frá um 13. öld. Það var mikill
hiti og áttum við nokkuð erfitt með að ganga um í þessum
hita.Padova er nálægt
Feneyjum og var víst hluti af veldi Feneyja. Við sáum hið vængjaða
ljón Feneyja á súlu í miðborginni. Næsta dag var ferðinni
haldið áfram í
norðurátt í átt að
Austurríki. Stefnan var tekin á Udine sem er ekki langt frá
Trieste. Hingað náði auturíska keisaradæmið þegar það var sem
voldugast. Þegar við vorum komin fram hjá Udine birtust
Alpafjöllin eins og
veggur. Hvernig er hægt aðkomast hér í gegn var hugsunin, en það
reyndist auðvelt. Vegirnir liggja eftir
árfarvegum og
þröngum dölum og auðvitað eru stór göng sem ekið var í gegn
um. Lengstu göngin Turinger göngin voru um 6
km, en samtals fórum við um 15 jarðgöng sum stutt önnur löng.
Stefnan var nú á Villac sem er með syðstubæjum Austurríkis á
þessu svæði.Það var notarlegt að fara úr bílum og finna að
ekki var eins heitt norðan alpafjalla,en samt 28 stig en
vindur sem breytti öllu. Nú vorum við farin að þekkja nokkuð
til þegar við sáum skiltið um afleggjara til Flachau eins að
skíðastöðunum í
dölunum þremur í Pongau héraði. Keyrðum fram hjá Flachau til
Wagrain. Þegar ekið var þar í gegn sáum við húsið hennar
Tótu(frænku Guðjóns) og Dodda(bróður Auðar Bjargar) Blóm voru
að auturískum hætti á veröndinni en þau heima á Íslandi. Loks
var komið á skíðahótelið okkar í Alpendorf eftir fjögura tíma
akstur.
Það var eins og að koma heim og vera
ávörpuð frú Magnússon! Strax um kvöldið voru gestir boðnir
velkomnir með freyðivíni og dagskrá næstu daga kynnt. Við sem
héldum að við værum mætt á heisuhælið það var öðru nær göngur alla
daga og ekkert dól heldur langar og strangar göngur. Við fórum
fyrsta daginn upp fjall í Maurachalm og þar var áð í fjallakofa
drukkinn bjór og borðaðar pyslur og ostur og þar stakk Cheferinnan
upp á að Hr og Fr Magnússon héldu göngunni áfram upp á
Sonntagskogel 19oo metrar og við létum nú ekkert nauða í okkur.
Kvöddum hópinn sem lélt til baka og gengum sjálf eftir vel merktri
leið á tindinn.Það var ólýsanlegt að sjá skíðabrekkurnar grænar með
sóleyjum og kálfar og kvígur á beit.Allar merkingar, sem tilheyra
vetraríþróttum farnar og sumarmerkingar og girðingar í staðinn.Við
gengum niður að kláfnum og settumst og létum flytja okkur niður
síðasta spölin, nokkuð ánægð með okkur.
Næsta dag fórum við og gengum í
Liechtensteinklamm, þröngt gil þar sem aðeins sérst upp í blán
himininn manngerðir stígar, sem höggnir eru inn í bergið og á brúm
sem festar eru á klettaveginn. Hrikaleg ganga og stórkostlegt að
sjá jökulvatnið berja veggina.
Þriðja daginn fórum við og
gengum að Tappernsee
fyrir ofan Kleinarl gangan upp tók 2 klukkustundir
og erfiðið var
þess virði því þegar upp var komið opnaðist dalur með
stöðuvatni og kjarri minnti dálítið á að koma inn í Þórsmörk
af söndunum útsýnið líka stórkostlegt niður í dalinn. Þetta
var í raun afrek að ganga þessa leið fyrir okkur, sem vorum
búin að liggja á meltunni og sóla okkur í tvær vikur, en
niður komumst við líka.
Það þarf ekki að taka fram að þegar á
hótelið var komið fórum við í gufubað og sólbað og kvöldmaturinn
sveik ekki frekar en vanalega fimmrétta glæsimáltíð og síðan 8 -9
tíma svefn. Hvað er betra eftir líkamlega áreynslu, matur og
svefn.
Við kvöddum Alpendorf á fimmtudegi og nú
var ferðinni heitið til Leipzig, heldur lítið að sjá og ekkert
sérstakt landslag landbúnaðarhéruð og heldur fátæklegt, þegar við
nálguðumst gamla austrið.
Leipzig er gamall verslunarstaður því
leiðin frá norðri til suðurs og líka leiðin frá vestri til austurs
lá um þennan bæ.Heldur nöturleg borg og eitthvað sorglegt við hana.
Endalausa blokkir og margar illa útlítandi fáir á ferli og allt
frekar snautt. En í Leipzig er merkileg kirkja Nikulásarkirkjan sem
kom við sögu 1989
vegna friðsamlegra mótmæla íbúa. Hér fæddist Wagner og Bach
starfaði hér og hér er frægur orgelskóli . Ég held að Páll
Ísólfsson hafi stundað nám hér. Er það ekki rétt Erna Tönsberg?
Halldór Kiljan kom hingað líka með vini sínum Jóhanni Jónssyni 1920
og var ekki Jón Leifs líka hér. Ég veit að faðir minn fór árlega
hingað á kaupstefnur og keypti m.a. annars perlufestar og annað
glingur, sem fínar frúr í Reykjavík stóðu í biðröð eftir að kaupa í
Liverpool.
Við borðuðum á torginu við
Nikulásarkirkjuna ég síld og kartöflur og Guðjón fékk sér
kartöflusúpu. Héldum við ferðinni svo áfram til
Berlínar.
Á þessu flakki okkar höfum við oftast gist
á ETAP hótelum ódýrum 45-50 Eur, sem eru alltaf staðsett í
úthverfum borga eða verksmiðjuhverfum, en í góðu sambandi við
almennissamgöngur og með vöktuðum bílastæðum sem er mjög mikilvægt
þegar ferðast er á svona fínum og stórum bíl og auk þess með alla
búslóðna með sér.
Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir
þurftum við að borða og enginn var veitingarstaðurinn í nágrenninu
nema “makki” og það var i fyrsta og eina skiptið sem við borðuðum
hjá þeim!
Daginn eftir fórum við í rútuferð um
borgina og skoðuðum helstu byggingar Berlínar.Mér finnst þessi borg
mjög ólík öðrum borgum sem ég hef komð í helst lík Toronto í
Canada. Nyju byggingarnar kaldar og líflausar, flottar tæknilega,
en heldur ómennskar eins og sumar íbúðir, sem við sjáum í innliti
og öðrum þáttum það er eins og enginn búi . En borgin á eflaust
eftir að breytast með tímanum. Skrítið að vera í Þýskalandi og
hvergi verið að selja hvorki pylsur né salt-kringlur.En við áttum
góðan dag í Berlín,skoðuðum Berlínarmúrinn og tilkomumikið
minnisverk um herförina.Fjær miðbænum er verið að endurbyggja og
gera upp gömul hús og það finnst mér frábært.
Þriðjudaginn 25.júlí hvöddum við Berlín og
héldum til Kiel um 300 km til þess að fara með ferjunni til
Gautaborgar.Ferðalangar voru eins og við fólk í sumarfríi og mikið
af barnafjölskyldum. Þægilegt ferðalag lagt á stað kl 18 og í höfn
kl0 næsta morgun.Við vorum með okkar skrínukost og létum fara vel
um okkur í káetunni .
Morguninn eftir hitti ég konu á bíladekkinu
sem spurði hvaðan við værum. Ég sagði henni það og henni fannst það
mjög merkilegt, því hún var að ljúka við að lesa “ Mýrina”
eftirArnald Indriðason og hitti svo íslending!,Hún veit ekki að við
landarnir erum alls staðar
Í Gautaborg tóku Ingibjörg og Lars á móti
okkur og það urðu fangaðarfundir það hefur staðið til að hittast
allt árið en ekki tekist fyrr en nú.
Hildur og Rolf komu líka til Gautaborgar
og Brynhildur, Alti
Rafn og Rafnhildur komu deginum áður og áttum við frábæra daga
saman . Það besta var að Lars var með okkur og honum leið miklu
betur heldur en vikunni áður á Íslandi..
Á miðvikudagskvöld buðu Ingibjörg og Lars í
kvöldmat, á fimmtudag fórum við á ströndina í Kullevik til Helenu
og Jóhanns og þau buðu í grill .Viktor kenndi Rafnhildi að veiða
krabba og beita með kræklingi , sem hann sótti í þangið og áður en
varði var Brynhildur komin á fjórar fætur á bryggjuna og æstust í
veiðinni! Krabbarnir voru settir í fötu og svo sleppt á stein í
fjörunni og síðan upphófst krabbahlaup, hvaða krabbi verður fyrstur
í sjóinn. Skemmtilegt!!
Á föstudag fórum við Guðjón til Vessigebro
og heimsóttum skólann, þar sem ég var fyrir 40 árum ,fórum til
Falkenberg.og heimsóttum Evu og Olof foreldra Lars í Varberg og var
okkur tekið opnum örmum og kaffihlaðborð beið okkar.Við áttum þarna
notarlega stund og ótrúlegt hve frísk og dugleg hjónin eru. Um
kvöldið fórum við í Líseberg og horfðum á jafnaldra okkar
dansa,langaði en slógumst ekki í hópinn.
Á laugardag sigldum við með “Paddan” um
skurðina í Gautaborg, með Ingibjörgu og í hádeginu slóst Lars í
hópinn og við borðuðum rækjubauðsneiðar og drukkum bjór við
markaðinn.
Við keyptum humar, síld og ber í
kvöldmatinn strákarnir gengu heim , en við systurnar fórum aðeins í
búðir. Ég varð að líta við hjá “Gudrunu”,en útsölunni var að ljúka
og lítið til í minni stærð! Öðruvísi mér áður brá, ég hef nefnilega
þroskast dálítið þessa mánuði og er ekki lengur í stærð
36!!!!!!!!
Fórum heim og hvíldum okkur. Klukkan fimm
var sporvagninn tekinn út á Saltholmen og ferjean tekin um
skerjagarðinnn fyrir utan Gautaborg. Skemmtilegt að nýta farmiðann
í sporvagninum til þes að ferðast um skerjagarðinn. Í frábæru veðri
og góðum félagssskap með Lars og Ingibjörgu. Mjög óvenjuleg ferð
fyrir okkkur. Ný upplifun af Gautaborg. Gott að hafa Lars og
Ingibjörgu með okkur og sérstaklega þegar Lars var með GPS tæki í
símanum sínum!!
Veðrið hefur verið dásamlegt og um kvöldið
borðuðum við úti á svölum og sátum fram í myrkur.
Það var komið að keðjustund og næsti
viðkomustaður Osló um 300km, ferðin tók um fimm tíma með klukkutíma
stoppi í Strömstad, miklum sumarleyfiststað , þar eiga Hildur og
Rolf fastar vikur í sumarhúsi .Það var mikið líf niður við höfnina,
margar ferjur að koma og fara með fólk í sumarfrí .Fyrir utan
ströndina er mikill skerjagarður og mörg sumarhús.
Í Osló gistum við á Radison Sas og vorum
óvanalega flott á því. Bjuggum á 11 hæð, með útsýni yfir
miðborgina. Gengum niður á Akersbryggjuna og horfðum á mannlífið og
borðuðum dýrasta mat ferðarinnar , en því miður ekki
góðan.
Til Bergen eru 500 km, vegirnir mjóir og
hlikkjóttur og ekið á að meðaltali á 50km/klst. Falleg leið, há og
brött fjöll og mikill skógur. Við fórum um 34 göng, sum stutt en
önnur löng og þau lengstu 24,5km um Aurlandsdalen ótrúlegt
mannvirki og hefur kostað peninginn og kannski ekki peningar til
þess að bæta vegakerfið að öðru leyti.En norðmenn innheimta
vegatoll, eins og svíar og allar aðrar þjóðir sem við heimsóttum
gera, en dýrast er að aka um Frakkland .
Hvernig er það borga útlendingar vegatoll,
þegar þeir koma með Norrænu á bílunum sínum til Íslands,eða sýnum
við ennþá svo mikla gestrisni að allt er ókeypis! Við höfum borgað
inngangseyri bæði í kirkju og náttúruperlur og ekki fundist það
tiltökumál. Eigum við ekki að taka þessi mál til athugunar
heima?
Á þriðjudagsmorgun hittum við Kára og
Heiðrúnu vini okkar í Hjálpræðishernum þau búa 50km fyrir utan
Bergen og komu til að hitta okkur Þau fóru með okkur á útsýnistað
fyrir ofan Bergen og áttum við góða stund saman. Kári er ekki af
baki dottinn mætir í desember í Reykjavík og Heiðrún
með.
Jæja komin um borð í Norrænu á leið til
Seyðisfjarðar og þar með lokast hringurinn og sjö mánaða útivist að
ljúka .
Margrét hefur verið dugleg að skrifa þessa
dagbók þesssa sjö mánuði. Hvað hefur maður lært hverju er maður
nær. Búinn að keyra nær 15000 km á þessum tíma. Fyrst til
Seyðisfjarðar í janúar. Frá Hanstsholm til Harwich í Englandi.
Keyrðum nokkuð í Englandi en tíminn þar var naumur vegna skólans og
ráðstefnuhalds. Ekið til Brussel með hjálp ferjunnar. Vorum þar í
tvær vikur. Frá Brusssel til Normandy og Bretange. Þaðan til St.
Emilion gengum Bordeaux og til Carcasonnes. Þaðan til Cote
Assure.Tvalið þar í hálfan mánuð Næst var farið til Toscanaog
dvalið í viku. Frá Toscana til Alpendorf og verið þar í
fjórar nætur Haldið áfram til Nurnberg og dvalið í tvær nætur.
Þaðan til Berlinar með viðkomu í Leipzich. Haldið frá Berlin eftir
tær nætur til Kiel og báturinn tekinn til Gautaborgar. Frá
Gautaborg eftir fjóra daga til Oslo og þaðan til Bergen og sofið
þar. Báturinn tekin til Seyðisfjarðar með viðkomu á Shetlandseyjum
og Færeyjum. Komum til Seyðisfjarðar að morgni 3.ágúst
Margrét og
Guðjón
»
04.08.2006 13:39:03 / margret06
Til Villeneuve Loubet komum við
föstudaginn 23.júní Palli og fjölskylda komu seint um kvöldið og
það kom í ljós að herbergið sem þau áttu bókað fengu aðrir svo
nú voru góð ráð dýr.En næturvörðurinn á hótelinu bjargaði málum
og útvegaði hótel, sem var nú ekki merkilegt en dugði þessa einu
nótt.
Við gistum á Ibis og hittumst svo næsta dag
í Vence og höfðum mælt okkur mót við húseigandann, sem leigir okkur
húsið sitt næstu tvær vikurnar.
Húsið er frábært þrjú svefnherbergi og bað
með öllum herbergjum gott eldhús, stofa góð verönd með sóltjaldi og
stóru borði .Öll tæki og tól svo hér mun fara vel um okkur
öll.
Húsið er í lokuðu hverfi með vakt allan
sólarhringinn rólegt og gott. Góð sundlaug sem tilheyrir okkar götu
og vorum við oftast þar ein. Skólum er ekki lokið ennþá og börnin
koma í laugina eftir kl 4.
Við eða réttara sagt Palli eldaði nær
alltaf og hér er mikið úrval í matvörubúðum, það var eldað alls
kyns góður matur. Nýtt brauð á hverjum degi og rósavín og önnur
eðalvín eki spöruð.
Þessar vikur höfum við mikið notað
sundlaugina, farið á ströndina, farið í skoðunarferðir um nágrennið
og ýmist farið öll saman eða skipt liði.
Brynhildur, Atli Rafn og Rafnhildur komu
seinni vikuna og bjuggu í íbúð skammt frá okkur og bættust í
hópinn. Gunna, Viðar og Bjarni voru fyrri vikuna og hittu okkur,
svo það var oft líf og fjör.
Staðir sem við skoðuðum Vence, Saint Paul,
Nice, Mónakkó, Cannes, Valbonne Cagnes sur Mer,að auki allir
strandstaðirnir Antibes og Villeneuve Loubet.
Gott húsráð sem Lars mágur minn kenndi
okkur þegar við vorum á Santorini með þeim hjónum að setja
vatnsflösku litla í frystihólfið á minibarnum að kvöldi og þá helst
vatnið kalt fram eftir degi . Það er nauðsynlegt að hafa alltaf
vatn með sér í bíl og líka eitthvað til að narta í ávexti og kex.
Það er aldrei að vita hversu löng bílferðin verður og tómir magar
eru ekkert gamanmál.
Vikurnar tvær liðu fljótt og nú fór
hópurinn að þynnast Dóra og Tómas Orri fóru heim til Íslands
laugardaginn 8.júlí og Brynhildur, Atli og Rafnhildur fóru sama dag
til Corsiku og við hin héldum á leið til Toskana, Ítalíu þangað sem
við ætlum að dvelja næstu vikuna.
»
19.07.2006 17:12:39 / margret06
Sunnudagur 18
júní .Lagt af stað frá
Brussell
Allt gekk vel fyrst til að byrja með þangað til við ræddum um
hvar ætti að gista. Við vorum jú á leið til Bretange en ættum við
að líta á Normandí. Eftir nokkrar vangaveltur var ákveðið að
gista í Caen sem er
fyrir sunnan Le Havre. Þar fundum við Ibis hótel fínt á góðu verði
eða 55 EUR. Það er alveg kostulegt hve sagan eltir okkur. William
the Conqueror sá hinn sami sem kom við á the Fighting Cooks,
pubbnum í St. Albans
þar sem við fórum með
alla okkar gesti. Viti menn hann davaldi með Matthildi sinni hér í
Caen og var upp á halds staður hans á 11du öld.
Mánudaginn
19. keyrðum við til Mont St. Michel. Við
ákváðum að sleppa Normandí með öllum þeim stríðsátökum sem þar voru
á D-Day.
St
.Michel er mjög
sérstakur staður. Þið munið kanski eftir í huganum eftir kirkju úti undan
ströndinni þar sem flæðir að á flóði. ‘eg gæti nú skrifað nokkarar
síður um þennan stað en sleppi því. Þeta er allt á netinu. Eftir St
Michael var haldið í vestur út á Bretange skagann og gist rétt við
St. Brieuc.
Fimmudaginn 22.
júní komum við til Carcassonne. Enn einn
miðaldabærinn, nei Rómverjar voru hér BC og fyrsti biskupinn hér var
vígður 696. Þá kom Guðríður Símonardóttir hér við um 1650 , ásamt
öðrum Íslendingum á leið úr Barbaríinu í Alsír. Við
borðuðum dæmigerðan
mat frá þessu héraði.: lauksúpa,hvítar baunir með svínapulsu og
gæsalæri.Á eftir var kaffi og Armanac. Á morgun er ferðinni heitið
til Avignion.
Nú
hófst svaka akstur og keyrðum við til Brest vestast á Bretange og héldum
suður og gistum í Vennees á suður ströndinni. Þar snæddi Guðjón
humar og Margrét ostrur.
Miðvikudaginn
21.júní keyrðum við til
Bordeaux héraðsins og
til bæjarins St Emilion, gamall bær frá miðöldum, steinlögð stræti,
þröngar götur og bærinn uppi á hæð.Við gengum um og önduðum að
okkur angan víns og jurta og nú var næst á dagskrá að finna
næturstað. Við enduðum á að hafa samband við vínbónda, sem hitti
okkur á torginu fyrir framan kirkjuna og ók á undan okkur heim til
sín, þar sem við gistum.Við gistum á eftri hæð fyrir ofan
vínpressuna í nýuppgerðu herbergi með útsýni yfir
vínakur.
Um
kvöldið fórum við aftur inn í bæinn til þess að borða og þá vildi
svo vel til að alls staðar í Frakklandi var dagur hljómlistarinnar
og á torginu, þar sem við borðuðum var dagskrá frá tónlistaskóla
bæjarins, krakkar á öllum aldri að spila á hljóðfæri. Góð skemmtan.
Á leiðinni að bílnum gengum við fram á hljómsveit, sem var að spila
í þröngri húsagötu hljómlist eins og var í myndinni “Svartur
köttur/hvítur köttur”, svo lítið stríðir tónar, en stemning og
hljómlistarmennirnir á öllum aldri sá yngsti ca 5 ára.
Eftir góðan nætursvefn borðuðum við morgunmat hjá frúnni og
hún sýndi okkur síðan framleiðsluna og sagði okkur allt um vínið,
m.a. það að á hverri vínviðarplöntu mega aðeins vera 7
vínberjarklasar, hinir klipptir burtu, það má ekki bleyta
jarðveginn of mikið því þá verða berin of vatnsmikil og það kemur
niður á víninu. Til þess að minnka hratið er sett þeytt eggjahvíta
í kerið og hratið fellur á botninn. Frúin sagði mér að reyna þetta
næst þegar ég laga tæra súpu!
Þriðjudaginn 20
júní var haldið áfram og ætluðum að
skoða Cote de Granit Rose. Þarna er ströndin mjög skerjótt og
miklar leirur. Því er mikið fuglalíf á þessum slóðum og m.a.stór
súlubyggð og lundabyggð. Nú er komið því merkilega. Við keyrum
þröngar götur og sjáum allt í einu skilti þar sem stendur Museé
Islandé. Það er sagt
um móðurfólk Guðjóns að þau eigi forföður frá Bretange. Ef svo er
þá leiddi hann okkur
hingað. Þetta var með ólíkindum að við duttum á þennan stað. Safnið
var því miður lokað og þegar við erum á leið út úr bænum “erum við
leidd” í kirkjugarðinn þar sem er minningarreitur
(veggur) til minningar
2000 franska sjómenn sem fórust við Íslandsstrendur frá 1852 1935.
Skemmtileg reynsla og ótrúlegt að minningu þessara sjómanna sé
haldið svo vel við.
»
13.06.2006 22:38:30 / margret06
Þar kom sumarið og
með þvílíkum hita í gær voru 32+ og í dag 35+,það er dálítið
heitt svona í borg og lítill vindur en ekki ætla ég að
kvarta.Sólin skín hér beint inn í íbúðina og frá fimm er hér
ólíft. Við fundum ráð við því, hér á næsta horni er Novotel
með flatskjá og bjór á tilboðsverði og með loktkælingu, svo
þangað læðumst við síðdegis.
Hér er vaknað snemma því Guðjón þarf að
fara kl 8 og við borðum saman morgunmat áður en hann fer.Þetta er
nú að verða dálítið suður-evrópst, hvítt brauð með sultu og kaffi,
en reynum þó að gleyma ekki jógúrtinum.
Ég byrjaði daginn á að fara í þvottahús í
næsta nágrenni og þar var mér kennt á vélarnar og svo sat ég og las
í bók á meðan þvottavélin og þurkarinn unnu sín verk.
Þegar ég kom heim aftur biðu mín þær
fréttir að litla Filippa frænka, er mikið veik á sjúkrahúsi og er í
rannsókn. Engar niðurstöður ennþá og allir hugsa til litlu
stúlkunnar, sem var að halda uppá sitt fyrsta afmælið s.l.
sunnudag.
Ég fór í Dómkirkjuna hér í Brussel og
kveikti á kerti og sendi góðar hugsanir til Filippu,mömmu hennar og
pabba og Viktors, sem er nú hjá ömmu Hildi og afa Rolf.
Ég hélt svo göngu minni áfram upp á
hæðirnar og í garðinn fyrir framan konungshöllina,”Parc de
Bruxelles”.Kóngurinn er heima, fáninn var á stöng upp á höllini og
það þýðir að hann er heima.
Í garðinum er hljómskáli og þar voru
tónleikar í hádeginu.Fimm bláturshlóð-
færaleikarar, sem spiluðu mjög blandaða
hlómlist, byrjuðu á lúðrasveitarlögum svipuðum þeim sem Svanurinn
spilar í skúðgöngum í Reykjavík. Svo spiluðu þeir eftir Gerswin,
Steavy Wonder og rokkkónginn Elvis! Frábært og
skemmtilegt.
Þarna sat fólk í hádegishlénu með
langlokur, skólabörn með nesti að heiman og
þarna var maður sem dró upp úr tösku sinni
glös á fæti og Campange, ég ímyndaði mér að hann og frú hans og
dóttir væru að halda upp á eitthvað skemmtilegt. Svo dró ég upp
eplið mitt og vatnsflöskuna og naut stundarinnar.
Ég lauk við að lesa “Reisubók Guðríðar
Símonardóttur”eftir Steinunni Jóhannesdóttur í gær og í dag las ég
“Fugl á garðstaurnum” eftir Halldór Laxness, dálítið skemmtilegar smásögur af
fólki. Ég veit ekki hvað verður lesið á morgun kannski “Dark
justice” eftir Jack Higgins bók sem Guðjón hefur verið með í allan
vetur en ekki náð að lesa. Best að ég lesi hana og segi honum í
stuttu máli frá atburðarrásinni, hann hefur haft nóg að lesa og
ekki komist í reyfarana!
Erna er að koma frá Ástralíu í kvöld og er
á leið til Spánar á morgun og svo til Íslands í sumarfrí og ætlar
að fara í sumarbústað og helst sofa í tjaldi!!
»
11.06.2006 20:36:40 / margret06
Það var brotist inn í bílinn okkar
aðfararnótt miðvikudagsins 7.júní. Það var brotin rúðan bílstjóra
megin og Tom-tomið tekið og Gladis með!, 24 cd diskar, sólgleraugu
og fleira smátt, en
annar Tom-Tom var í bílnum, sem bíður Páls og Sigrúnar var á sínum
stað. Ferð á lögreglustöðina, leit að Toyota verkstæði tók daginn,
en með hjálp góðra manna gekk allt upp. Bílinn tilbúin eftir tvo
daga og þá fórum við með hann til kunningja okkar 50 km hér frá og
geymum hann þar til um næstu helgi, þegar við förum
héðan.
Guðjón var á ráðstefnu um vísndasöfn á
fimmtudag og föstudag. Ja hann fæst við ýmislegt.OR rekur Rafheima
í Elliðárdal sem er fyrsti vísir að víndasafni á Íslandi, Nú er
Háskólinn og Kennaraháskólinn komnir í málið og ætla að vera með í
þessari uppbyggingu. Það var fróðlegt að sjá hve vísindasöfnin eru
mörg í heiminum og við
kannski þó nokkuð á eftir.
Guðjón byrjaði á námskeiði hjá
Evrópusambandinu í dag, ég fylgdi honum og kom mér fyrir í garði
þar skammt frá með bók og banana! Ég er að lesa “Reisubók Guðríðar Símónardóttur”
og funnst hún mjög athygliverð.
Brussel kemur mér á óvart, mér finnst þessi
borg óhrein og óörugg, og held að hún muni ekki draga mig til sín
aftur.
Við búum í miðbænum í ágætri íbúð Ernu
balletdansara og danshöfundar, skólasystur Brynhildar okkar. Þegar
heita vatnið komst á eftir fimm daga þá finnst okkur þetta bara
fínt. Erna flaug til Ástralíu á sunnudaginn, er þar með námskeið ,
kemur til Brussel aftur á miðvikudag og fer þá
Þýskalands.
Mér var hugsað til formæðra okkar, sem báru
þvottin í þvottalaugarnar og aftur til baka blautan í alls kyns
veðrum, þegar ég stóð og þvoði hér í baðkarinu sokkaplögg og
skyrtur! Mitt verefni hér þessa vikur er að sjá um að Guðjón mæti
vel til fara og fái góðan mat að degi loknum!Svo fer
ég og við í
frí!!!!!!!
Í kvöld var borðaður saltfiskur að
hætti Tómasar R, frábær uppskrift, Helga og drukkið rósavín með.
Það þekktist ekki í Firðinum að drekka vín með saltfisknum í
denn!
Nú þarf ég að koma drengnum í bólið á
morgun verður heimsókn til ráðherra- nefndar Evrópusambandsins og
ekki dugir að mæta með bauga!!
»
06.06.2006 21:14:18 / margret06
Við erum komin til Brussel. Ferðin gekk að
óskum, siglingin tæpar tvær klukkustundir, en ég var að velta því
fyrir mér hvort við hefðum lent á bingókvöldi eða á pöbb í upphitun
fyrir fótfoltaleik! Við vorum auðvitað með þeim yngri um borð,
auðvitað er unga fólkið bundið af börnum í skólum, en okkar aldur
getur flogið hvenær og hvert sem er.
Gladys leiddi okkur að réttu húsi í miborg
Brussel, þar sem Erna býr.Hún fór með okkur í stutta gönguferð og
sýndi okkur nágrennið, matarbúðina og fleira,síðan keyrðum við hana
út á flugvöll ,hún flaug til Ástralíu og verður að heiman í tvær
vikur og á meðan erum við hér.
Þetta er ágætis íbúð, nema ekkert heitt
vatn og það kemur ekki fyrr en á föstudag og bað í köldu vatni er
ekki það besta!
Í gær fóum við í skoðunarferð með strætó um
borgina til þess að ná áttum og læra pínulítið um sögu
Begíu.
Í dag keyrðum við til Mechelen þar sem
Guðjón verður á ráðstefnu næstu daga og ég verð ekki í vandræðum
með að eyða dögunum þar, mjög fallegur bær,sem var höfuðborg
Flandern og þar sendur gríðastór kirkja sem var byggð um
1300.
Annað kvöld ætlum við að hitta Belgíska
Round-Table vini okkar Eric og Marí Helena.Eric hefur flogið
nokkrum sinnum yfir hafið á lítilli flugvél sinni og alltaf
heimsótt okkur í leiðinni bæði á Rauðahjallan og Suðurgötuna.
Og Brynhildur var hjá
þeim nokkra daga meðan við sóttum Regínu til Luxemborgar sumarið
1980.
Það kemur okkur á óvart að þótt það sé 18
stiga hiti er þetta bara blástur að norðan og okkur finnst þetta
bara íslenskt veður. Við bjuggumst við því að vera á stuttbuxum en
það er nú ekki sá hiti
að lærin þoli
næðinginn. Vonandi batnar þetta. Á annan í Hvítasunnu var heitast í
vestur Evrópu á Egilsstöðum. Það er ekki hægt að treysta veðri
norðan Alpafjalla. Það er staðreynd
»
03.06.2006 21:39:18 / margret06
Það er ótrúlegt hve hratt tíminn
líður,við erum nú búin að vera tæpa fimm mánuði hér á Englandi.
Á sunnudag flytjum okkur yfir á meginlandið með allan okkar
farangur förum við með ferjunni frá Dover til Calais
Hér í Hemmel, Hempstead hefur okkur liðið
vel. Fallegt umhverfi og rólegt, stutt í allar áttir þar sem Hemel
er á milli tveggja stórra hraðbrauta M25,sem er hringvegurinn í
kringum London og M1, sem liggur norður. Hugsa sér að við erum búin
að aka á vinstri kantinum án erfiðleika.Þess má geta að
umferðin er svakaleg.
Vegirnir anna ekki þessum mikla bílaflota.
St Albans er uppáhaldsbærinn okkar og
þangað höfum við farið flest alla laugardaga og dregið alla okkar
gesti .Í St Albans eru minjar frá tímum Rómverja, í Hatfield ólst
Elísabet 1 upp, í Blenheim fæddist Sir Winston Churchill og ólst
upp og ekki má gleyma Windsor kastala Elísabetar
drottningar.
Allir þessir fallegu staðir eru rétt við
bæjardyrnar í Hemel og þá alla höfum við heimsótt.
Dvalarstaður okkar næstu tvær
vikurnar verður Brussel, þar leigjum við íbúð í miðborginni og
Guðjón verður á námskeiði fer á ráðstefnu og heilsar upp á
EB.Margrét hefur allan tíman til þess að skoða borgina, fara á
markaðinn og elda. Eins og ég hef oft sagt er verðlag á mat hér
allt annað en heima og úrvalið og gæðin á grænmeti og ávöxtum
gjörólíkt.Það er eitthvað, sem ekki gengur upp með matvöruverð á
Íslandi og verið á brauði hlýtur að vera skoðunarvert.
Frá Brussell er förinni heitið til
miðjarðarhafsins og ætlum við að aka suður Belgíu, Luxemburg og
Frakkland .Í Villeneuve-Loubet rétt hjá Nice erum við búin að
leigja hús í tvær vikur með Palla og Sigrúnu. Dóra, Brynhildur og
Atli bætast í hópinn.
Þaðan förum við til Toskana á
Ítalíu einnig
með Palla og Sigrúnu og leigjum þar hús í viku.
Svo verður ferðinni haldið norður til
Íslands ekki alveg ákveðið hvaða leið við förum en með viðkomu í
Gautaborg förum ekki
Hallsberg en viljum gjanan hitta ykkur einhvers staðar á leiðinni.
Frá Bergen siglum við með Norrænu 1.ágúst og lokum hringnum, sem
hófst 12.janúar, þann 3.ágúst á Seyðisfirði.
Sumarið kom aftur í gær 2.júní, sól og
heiður himinn. Hólmfíður Garðarsdóttir kom til okkar og við fórum
til St Albans gengum í garðinum og enduðum á að borða á “Hanaslags
kránni”. Keyrðum hana svo í lestina hún átti von á vinkonum sínum
að heiman, sem flúðu veðrið.
Í dag gátum við ekki sleppt
laugardagsrúntinum og erum því enn að pakka og þrífa, en þetta er
að verða búið, end kemmst ekki meira í bílinn.
Það á að vaka snemma og leggja af stað
héðan kl 7.00.
Kveðjum því Hemel,Hempstead.
»
19.05.2006 21:17:44 / margret06
í húsinu síðan Rafnhildur Rósa og Brynhildur flugu heim á
miðvikudaginn. Engar litlar kaldar tær skríða í holuna og knúsa
ömmu síma, en afi Guðjón er hjá mér og við höfum það mjög gott
saman.
Í
morgun var smurt nesti og kaffi sett á brúsa og haldið til Blenheim
Palace , Woodstock fæðingarheimili Winston Churchill. Anna
drottning gaf John Churchill firsta hertoga af Malborough þetta hús
fyrir vel unnin hernaðarstörf eftir að Bretar unnu skríðið í
Blenheim gegn Frökkum 1704.
Núna vitum við hvernig Spencer og Churchill ættirnar sameinuðust
og heita í dag Spencer Churchill og hertoginn af Marlborugh og
fjölskylda búa hér, en leyfa almenningi að skoða herlegheitin. Hér
væri hægt að eyða heilum degi bæði að skoða húsið og garðinn,sem er
skórkostlegur.
Hér fæddist Winstor Churchill og átti hamingjusamlega Það
hefur verið heldur hljótt æsku virðist hafa verið mjög tengdur
föður sínum mörg bréf þeirra á milli. Hér í garðinum bað hann konu sinnar
Clemintín og hér málaði hann vatnslitamyndir. Stór maður í Breskri
sögu og allt þetta er hér við túnfótin þar sem við búum.
Hugsið ykkur þessi maður tók þátt í Búastríðinu og leiddi
Bresku þjóðina gegn Þjóðverjum í seinna stíði, forsetisráðherra
Bretlands og mikilsvirtur stjórnmálamaður. Forfaðir hans John
Churchill sem vann orrustuna við Bleinheim(í
Þýskalandi) vann þá
orrustu vegna herkænsku sinnar. Eflaust má segja
að Churchill
hafi fegnið þá kænsku í vöggugjöf.
Hitler hafði augastað á Blenheim og ætlaði að hafa aðstetur
þar og þess vegna var húsið ekki eyðilagt í stríðinu.Þess má geta
að höllin var notuð sem þjáfunaraðsetur fyrir leyniþjónustuna í
stríðinu.
Guðjón sinnir undirbúningi að næstu áföngum í náminu svo sem
ráðstefnu í London, viðtöl við endurskoðendur og veru okkar í
Brussell en þangað förum við 4.júní
Á
morgun er laugardagur og það þarf mikið til að breyta út af föstum
laugardags -rútínu okkar til St Albans, allt grænmeti og ávextir
upp étnir svo ekki veitir af að komast á markaðinn og taka þátt í
hringiðu mannlífsins!
»
15.05.2006 18:57:16 / margret06
Nú erum við
komin heim eftir tveggja daga heimsókn í LEGO –
LAND í Windsor,
skemmtilegur garður fyrir allan aldur jafnt fyrir ömmur og
afa og krakka. Við vorum tvo daga í garðinum og gistum eina
nótt á hóteli, það veitti ekki af þessum tíma.
Rafnhildur Rósa var búin að merkja við 21 tæki, sem hún vildi
skoða og ég held að við höfum farið á næstum alla og suma
tvisvar!
Ég
mæli með þessum garði það er aðeins greiddur aðgangseyrir
og síðan frítt í öll
tæki. Við vorum með nesti, handklæði og góða skapið og skemmtum
okkur vel. Rafnhildi fannst skemmtilegast í vatnsrennibrautinni,
þar sem við sigldum í báti og fórum síðan niður bratta og vatnið
skvettist yfir okkur.
Rafnhildur er komin í bað og Guðjón að sækja Brynhildi út á
flugvöll.Hún ætlar að vera hjá okkur í tvær nætur svo fljúga þær
heim á miðvikudag.
Rafnhildur hefur verið kát og skemmtileg, enda fullt prógramm
en það sem hún saknar mest fyrir utan foreldra sína, eru
leikfélagarnir. Hún lék sér við hlið krakka á leikvöllunum ern það
vantar dálíðið mikið að geta ekki talað saman.
»
07.05.2006 17:57:15 / margret06
Það er tími til komin að setja
nokkrar línur á blað því ég sé að ég fæ margar heimsóknir á
bloggið og þið kæru vinir viljið fá nýjar fréttir, ekki
satt?
Nú var Rafnhildur Rósa að færa mér
”gleym-mér-ei” á barminn, hún og afi Guðjón eru að slá blettinn og
ég sit hér.
Rafnhildur Rósa kom sem sagt s.l.
sunnudag og ætlar að vera hjá okkur nokkrar vikur.Brynhildur og
Atli Rafn brugðu sér til Rómar í þrjá daga og komu svo til okkar í
aðra þrjá en eru nú farin heim aftur og Rósin varð eftir hjá afa og
ömmu ekki leiðinlegt það.
Á mánudag var keypt bleikt þríhjól
m/hjálpardekkjum og hjálmur og nú hjólar Rafnhildur Rósa léttilega.
Hjólar meira að segja standandi og getur sleppt annari
hendinni!
Það hefur orðið mikil breyting á
náttúrunni hér s.l. vikur, kirsuberjartrén í blóma og önnur hvít
blómstandi tré,sem ég veit ekki nafn á. Öll önnur lauftré eru
útsprungin.
Í morgun fórum við Rafnhildur í
”listigarðinn” í St Albans og hún hjólaði kringum tjörnina,gaf
öndunum brauð og lék sér í leiktækjunum. Þar var stokkandarpar með
10 unga og Canada gæsarpar með 5 unga nokkuð sem hætt er að sjást á
tjörninni í Reykjavík.
Það voru ekki bara börn að leik við
tjörnina heldur líka heldri herrar með fjarstýrðu bátana sína,
sólstóla og kaffi á brúsa . Í þessum skemmtilega garði er
sullu-garður þar sem vatn rennur úr mismunadi rörum í mismunandi
hæð nokkurskonar hringrennsli og þar lék Rafnhildur sér í gær í
baðfötum og söng.
Í gærkvöldi var frumsýning í
sjónvarpinu á nýrri leikinni Pétur Pan mynd. Feikilega skemmtileg
fannst okkur öllum og eftir myndina var haldin söngvakeppni í
stofunni að frumkvæði Rafnhildar. Milli stofunnar og borðstofunnar
eru rennihurðir og upplagt að sýna leikrit. Þessi leikur var nú
vinsæll á Mánastígnum forðum daga, muniði það systkyni
góð?
Guðjón var á ”heimarvistarskóla” í
síðustu viku. Ashridge er hér í 10 km fjarlægð og þangað keyrðum
við hann í frábæran kastala þar sem allt var innifalið matur og
gisting og strangt nám.
Ég fór með Brynhildi og Atla Rafn í
St Albans og sá bær svíkur engann . Brynhildur fann flottar búðir,
en Atli hefði þegið lengri tíma á pubbnum, en við borðuðum að
sjálfsögðu á ”The fighting cooks” og í þetta sinn var setið úti í
garði. Dásamlegt! En nú er sumarverðið komið á matseðilinn, réttir
sem kostuðu 5,95 í vetur kostar nú 7,95 góðir!
Ég gleymdi að minnat á að við
heimsóttum höll Elísabetar í Windsor með Hildi og Rolf og ég mæli
með heimsókn þangað ef fólk er í London það er ekki aðeins höllin,
sem er frábær heldur samnefndur bær, sem er gamall og fallegur og
mjög snyrtilegur.
Eton háskólinn er þarna og það var
kostulegt að sjá nemendurna, að sjálfsögðu drengi klædda kjólfötum
og hvítum skyrtum! Við sáum þá líka hverfa inn á heimavist og koma
út aftur eins og venjulega unga menn í stuttbuxum og bolum með
hjólabretti!
Í næsta nágrenni Windsor er Lego-land
garður og þangað er ferðinni heitið næsta sunnudag og ætlum við að
gista eina nótt .
Dagsrá næstu viku í stuttu máli er að
gefa afa næði í fjórar klukkustundir á dag, hann þarf að skrifa
greinagerð um námið sitt og lesa áfram fyrir næsta námskeið. Við
Rafnhildur verðum ekki í vandræðum með það, hér er líka annar
garður með skemmtilegum klifurtækjum og góðum stéttum til þess að
hjóla.
Það er þreytt lítil stúlka sem legst
til hvílu á kvöldin og sefur ellefu klukustundir og vaknar
syngjandi .
»
23.04.2006 18:58:51 / margret06
Ferðin heim til Hemel á föstudaginn gekk vel
þrátt fyrir klukkustundar seinkun frá Keflavík.
En það voru þreyttir ferðalangar sem lögðust til
hvílu um kvöldið, en gott var að vakna í sól og 15 stiga hita og
sitja með kaffibolla úti í garði.
Það eru fastir liðir að fara til St Albans á
laugardögum eins og þeir vita sem hér hafa verið. Nú er búið að
helluleggja aðalstrætið og auðvitað breytir veðrið mikið
stemningunni.En verðin eru áfram góð og við keyptum
lambakótilettur, sem á að grilla í kvöld. Ég keypti líka
pelagoníur, sem fara hér í garðinn.
Á laugardagskvöld komu svo Hildur og Rolf og
eftir góðan, léttan mat var farið að sofa líka þreyttir
ferðalangar.
Það var búið að spá sólskini í dag, en það brást
en ekki hægt að hvarta, verðrið milt og stillt og ferðinni heitið
til Hatfield, þar sem Elísabet 1 ólst upp og bjó þar til hún var
krýnd 1558. Elísabet sat undir eikartré og las biblíuna á grísku,
þegar henni barst fréttin um að systir hennar væri dáin og henni
bæri að taka við krúnunni. Dramatískt!!
En Hatfield House er sem sagt til sýnis að hluta
og með húsgögnum og málverkum frá tíma Elísabetar. Við vorum svo
heppin eins og alltaf, að í dag voru leikarar að fara með sonnetur
eftir Shakespear í garðinum kringum húsið, sem er nú kapituli fyrir
sig og það var dásamlegt að ganga um í garðinum kirsuberjatré og
önnur blómstrandi tré, dálítið eftir af páskaliljum og runnarnir ný
klipptir og ilmandi. Þarna er líka frábært tindátasafn, sem er
alveg þess virði að heimsækja.
Á morgun er ferðinni heitið Winsor, afmæli
Elísbetar var reyndar á föstudaginn, en kannski á hún
einhverja
afganga eða bara
forvitnumst um höllina.
Það er ekki vert að
láta gestina býða lengur, nú er að setja lambakjötið á grillið og
draga tappa úr rauðvínsflösku! Kjötið verður borðið fram með
fylltum sveppum og salati og í eftirmat ferskur ananas smurður með
hunagi og grillaður í ofni. Þetta er nefnilega flott
hótel!!!!!!!!!!!
»
19.04.2006 21:17:49 / margret06
Síðasti
vetrardagur.
Páskarnir liðnir
og í dag síðasti vetrardagur og fríi okkar hér heima að ljúka. Við
erum búin að hafa það mjög gott. Hitta fólkið okkar og vera með
þeim, koma heim á heimilið okkar og nú er komið að leiðarlokum í
bili.
Það var ólýsanlegt
að vakna í rúminu sínu við það að Rafnhildur Rósa stóð í
náttfötunum og vakti okkur með kossi. Hún vildi helst vera sofandi
í rúminu okkar þegar við komum en það gekk ekki við komum svo seint
. En vakt okkur í staðinn og Brynhildur tók til morgunmat!! Góðar
móttökur það.
Við fórum á
Þingvelli til Sigrúnar og Palla og gistum eina nótt borðuðum góðan
mat og þar var lagt á ráðin vegna sumarferðar okkar til Frakklands
og Ítalíu næsta sumar.
Saumaklúbburinn og
makar borðuðu með okkur á miðvikudeginum fyrir skírdag og þá var
ákveðin næsta skemmtiferð klúbbsins og hún verður sigling í
Karabískahafinu í september n.k., en líklega verður nú tjaldað að
vanda um verslunarmannahelgina.
Auðvitað voru
mæður okkar heimsóttar og þær komu hingað tvisvar í mat.Regína er
orðin ansi gleymin og ég ætla að kveðja hana því ég er ekki viss um
að hún þekki okkur næst þegar við komum.Regína er alltaf á leið í
Garðarstrætið til mömmu sinnar og skilur ekki að allt hennar fólk
er farið.
Mamma tók á móti
okkur með hlaðborði pönnukökum og jólaköku og ekki hefur
bakarlistin brugðist henni. Fór með henni á talmeinastöðina og hún
sótti nýtt heyrnartæki, en heyrnin er orðin ansi léleg og stundum
erfitt að tala við hana í síma.
Dagarnir hér voru
notaðir líka í praktiska hluti. Skattframtöl, bankamál (verst hvað
gengi bréfanna lækkaði og Guðjón suma daga sveittur!), læknar
heimsóttir,klippin og litur og í dag táasnyrting! Frábært.
Á morgun
sumardaginn fyrst ætlar Rafnhildur að vera með okkur og við ætlum í
sund og svo í Fjölskyldu og húsdýragarðinn, heimsækja Regínu og
fara í kaffi til Eygerðar.
Bæði Brynhildur og
Atli Rafn verða í upptökum. Atli í Mýrinni og Brynhildur í
Stelpunum.
Svo fljúgum við
heim til Hemel á föstudag og mér sýnist vorið vera komið þar, getum
kannski borðað morgunmat á laugardag í garðinum!
P.S Kjúklingar
“fljúgandi Jakob” líklega ættaðir frá Ingibjörgu systur og
sívinsælir.
Klúbburinn bað um
uppskriftina og hér fær hún að fljóta með. Gangi ykkur vel.
4 bringur,8 vængir
og 8 læri steikt á pönnu.
4-5 stk
bananar
4,5 dl rjómi
þeyttur
2,5 dl
Chilisósa
2 pk bacon – 1 dl
saltaðar hnetur
Ofnfast
fat smurt og kjúklingurinn settur á fatið ásamt brytjuðum banönum.
Rjómanum og Chilisósunni blandað saman við og smurt á kjúklinginn.
Sett í heitan 225 ofn í 30 mín.Steikt beicon og salt hnetum stráð
yfir og sett smá stund í ofninn.
»
05.04.2006 18:12:28 / margret06
Hvert fór vorið!
Í nótt var næturfrost og þegar við
keyrðum Helgu og Gunnar út á flugvöll kl 4.30 þurfti að skafa
bílinn! Ótrúlegt hvernig kuldinn treður sér að og páskaliljurnar
alls staðar útsprungnar
Helga og Gunnar voru
hjá okkur og hér var fullt prógramm. Laugardagur fastirliðir í St
Albans og á sunnudag lögðum við á stað til
Stratford-upon-Avon,keyrðum gegnum Broadway,Bibury og gistum á
Swan-Hótelinu einmitt þar sem Sigrún og Palli borðuðu með okkur
krækling fyrir nokkrum vikum síðan.
Við fengum sitt hvora
brúðarsvítuna og sváfum í lokrekkjum og höfðum nuddbað og annað
fínirrí!.
Í gær fórum við til
London alla leið til Lewisham ,Þar sem Helga var í skóla fyrir 40
árum síðan. Skólinn er ekki lengur starfandi, en Helga fann húsið
bankaði upp á og var boðið inn. Frúin sem býr í húsinu kannaðist
við að þarna hefði verið skóli áður fyrr. Síðan fórum við í Covent
Garden og segjum ekkert frá því að hurðinni á neðanjarðarlestinni
var lokað á nefið á Gunnari og þau hjónin urðu viðskila við okkur
Guðjón, en allt gekk upp og við fengum okkur að borða saman áður en
haldið var heim til Hemel.
Í dag var grasið
slegið , sólin skein og þvotturinn þornaði fljótt og vel, en það er
spáð næturfrosti aftur í nótt.
Nú tekur Guðjón við
skirftir
Það er einkennilegt
með fjölmiðlana. Við höfum gegnum árin horft á og lesið gulu
pressuna í Englandi og
hvernig slúðurblöðin hafa oft náð athygli. Mér
finnst ábyrgu
fjölmiðlarnir ekkert betri. Þeir vilja bara sjá
blóð.Menningarmálaráðherrann var tekinn af lífi í beinni
útsendingu vegna þessa að maður hennar átti viðskipti við
Belusconi sem greiddi honum vel fyrir einhver viðvik. Blair
og Brown fengu lán fyrir flokkinn. Allt bókhald flokkanna er
opið en lánin voru falin en einn lánveitandi glopraði því út
að hann byggist ekki við að fá lánið endurgreitt. Hann fengi
kannski eitthvað á móti. Málið dautt eins og stendur.Þeir eru
alveg að verða vitlausir út í Blair af hverju hann hætti ekki eins og búist
var við. Talið að þeir hnakkrífist á
stjórnaheimilinu. Þá er endalsut spáð í hvort þeir horfi á
hvorn annan á fundum og tjái sig með ýmsum hreyfingum sín á
milli. Getgátur. Þeir ætla að búa þetta til, spinna þráð. Mér
finnst stundum að fjölmiðlar hér lifi í einhverju limbói.Eins
og þeir tali ekki við venjulegt fólk enda finnst þeim mjög
gaman að fjalla um stjörnurnar.
»
24.03.2006 17:33:04 / margret06
Vorið er komið !!!!!
Það leynir sér
ekki að vorið er komið Á mánudaginn var vorjafndægur og þá sagði
veðurfræðingurinn hér að nú væri fyrsti dagur vorsins upp á ensku,
en ekki var mikið vorloft þá en nú er það komið 11+ og logn.
Það hefur verið
rok nánast síðan við komum 15.janúar og blásið ýmist frá norðri eða
að austan. Ég fór aðeins út í garð í dag, en um helgina á að byrja
vorverkin að fullu. Raka lauf, skera kanta og þvo glugga.
Simon húseigandi
er greinilega dálítill tækjakarl, því hér eru öll
verkfæri svo
tækjaskortur á ekki að draga úr framkvæmdum. Ég tók áklæðið af
borðstofuskólunum í vikunni af því að ég fann heftibyssu og
við ætlum að kaupa áklæði í St Albans á markaðinum á morgun og
setja á stólana.
Ég hef sem sagt
verið að dunda í vikunni og farið hljóðlega. Guðjón var að vinna að
verkefni, sem hann lauk við í dag og fór með sér í skólann og nú er
að vita hvað kennarinn segir!!
Á mánudag fer
Guðjón svo í viðtal hjá kennaranum og ég ætla með eins að
aðstandanda ber.
Það verða bakaðar
lummur á morgun, takk fyrir uppskriftina Helga verst að
rifsberjasultan frá Mánastíg er búin.
»
19.03.2006 15:24:00 / margret06
Vikurnar fljúga
áfram , það eru rúmir tveir mánuðir síðan við komun hingað og
tímabilið hér tæplega hálnað.Alltaf er jafn gaman og við höfum
það gott.
Á fimmtudag var
ráðstefna í tæknisafni, þjóðminjasafnsins í London á vegum íslensku
orkufirtækjnna og
þangað mættu margir af toppmönnum bransans og tók Guðjón líka
þáttt.
Þetta þýddi ferð
til London og gisting þar.Við gistum aftur í South Kensington og
erum farin að þekkja það hverfi nokkuð. Um kvöldið forum við út að
borða OR-liðið, Auður Björg og Kiddi, Ásgeir og Sveinbjörg og við
Guðjón. Það var skemmtilegt að hitta þessa vini okkar og mikið var
spjallað.
Á föstudag var
ferðinni heitið til Soho undir fararstjórn Kidda til þess að skoða
vatnshana,sem kom við sögu á 18. öld, þegar kólera geisaði og
læknirinn rak smitberann til vatnsins og lét fjarlægja sveifina og
taka brunninn úr notkun.Nú skildu leiðir Guðjón í skólann og ég
heim.
Á laugardag komu
Ásgeir og Sveinbjörg til okkar í Hemel og við fórum með þau
laugardagsrúntinn til St Albans, með viðkomu á markaðinn og í mat á
hanaslags-pubbinn.
Sunnudagur í dag
og sólin skín, fallegt gluggaveður, en ekki er nú hlýtt, fórum í
göngutúr niður við á og við ekki þau einu sem sólin dró út!
Annað kvöld koma
Tóta og Doddi í milliflugi frá Íslandi og á leið til Austurríkis á
þriðjudag, svo hér er alltaf eitthvað um að vera. Annars þarf
Guðjón að nota tímann vel þetta námskeið er að verða búið og hann þarf að
skila ritgerð,svo nú ætla ég að fara að rota í moldinni og raka
lauf og annað dundur!! Ég er stundum að tala of
mikið við hann og tefja!
»
Síður: 1 2
|
|